hotspot
09. apríl 2010Ályktanir

Heimdallur gerir athugasemdir við framkvæmdir í ljósi þröngrar stöðu

Atburðir og umræða síðustu daga sýna vel hve hættuleg blanda stjórnmálamenn og opinber útgjöld eru. Á tímum niðurskurðar á öllum sviðum í Reykjavíkurborg hefur meirihlutinn í borginni tekið þá ákvörðun að endurfjármagna gamlan kosningavíxil R-listans upp á 230 milljónir í formi stærri golfvallar í stað þess að fresta stækkuninni eins og gert hefur verið með önnur verkefni og framkvæmdir í ljósi þröngrar stöðu borgarinnar.

Á sama tíma og borgarfulltrúar minnihlutans í Reykjavík gagnrýna meirihlutann fyrir að efna útgjöldin sem þeir stofnuðu þó sjálfir til á sínum tíma, boða sömu flokkar milljarða samgönguframkvæmdir á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Þær framkvæmdir eru vitaskuld kostaðar af skattfé heimila og fyrirtækja. Til að fullkomna ósamkvæmnina boðaði einn þingmanna þingmaður Samfylkingarinnar á vef sínum sama dag og umræðan í borgarstjórn fór fram að byggja þyrfti upp gestaaðstöðu og þjónustumiðstöð við skíðasvæðið í Hlíðafjalli "af metnaði" og að horfa ætti til lífeyrissjóðanna í þeim efnum.

Framtakssemi stjórnmálamanna eru engin takmörk sett, svo lengi sem hún er á kostnað annarra.

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, minnir kjörna fulltrúa í sveitastjórnum og á þingi á að peningarnir sem þeir eyða af metnaði eru teknir frá heimilum og fyrirtækjum landsins þar sem róðurinn er víða þungur um þessar mundir. Því væri nær að draga úr eyðslu hins opinbera og skilja meira eftir hjá fólkinu í landinu.
03. mars 2010Ályktanir

Endurkoma netlöggunnar?

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur boðað umfangsmikla upplýsingasöfnun ríkisins um netnotkun landsmanna við fyrirhugaða endurskoðun höfundarréttarlaga til að kortleggja umsvif ólöglegs niðurhals á netinu.

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík gagnrýnir þessar hugmyndir enda leysir það engan vanda að opinberir starfsmenn taki það að sér að kortleggja internetið og netnotkun landsmanna. Áform ráðherrans verða enn síður traustvekjandi þegar rifjað er upp að forystumaður sama flokks nefndi þá hugmynd ekki fyrir alls löngu að komið yrði á fót netlögreglu til að sinna eftirliti á vefnum.

Rétthafar hugverka vilja meina að þeir verði af miklum tekjum vegna ólöglegrar dreifingar á netinu. Í stað þess að ganga á varhugaverðan hátt á friðhelgi einkalífs almennings, væri nær að leita leiða til að gefa fólki tækifæri til að sækja sér efni á netinu á löglegan hátt með því að greiða fyrir það. Kortlagning stjórnvalda á netnotkun landsmanna er í það minnsta ekki rétta leiðin.
05. nóvember 2009Ályktanir

Útboð er eðlilegasta leiðin til að ákvarða eignarhald fyrirtækja til framtíðar

Stjórn Heimdallar hvetur forsvarsmenn bankanna til þess að hafa gagnsæi og jafnræði að leiðarljósi við endurskipulagningu fyrirtækja. Þetta á einkum við þegar teknar eru ákvarðanir um framtíðarfyrirkomulag eignarhalds í stórum fyrirtækjum.

Mikilvægt er að ferlið við sölu fyrirtækja verði þannig úr garði gert að allir geti boðið í fyrirtækin og að tryggt sé að hámarksverð fáist.

Útboð er eðlilegasta leiðin til þess að ná þessum markmiðum og mun heppilegri leið en að fyrrverandi eigendur fái fyrirtækin í hendurnar eftir miklar afskriftir skulda og krafna hjá bankanum. Með því að fara leið útboðs er einnig hægt að tryggja önnur markmið, s.s. aukna samkeppni á mikilvægum mörkuðum.

24. júlí 2009Ályktanir

Heimdallur gerir athugasemdir ný umferðarlög

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, leggst alfarið gegn nokkrum tillögum í drögum að frumvarpi til nýrra umferðarlaga.

Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að ökumönnum undir 20 ára aldri sé óheimilt að aka með fleiri en einn farþega á nánar tilgreindum tímum sólarhringsins á sérstökum dögum vikunnar, nánar tiltekið frá kl. 23 á föstudegi til kl. 9 að morgni laugardags og frá kl. 23 á laugardegi til kl. 9 að morgni sunnudags.


Félagið telur þessar reglur ekki aðeins óþarflega flóknar heldur einnig ólíklegar til að skila tilætluðum árangri í tilraunum til að fækka slysum í umferðinni, sem virðist vera tilgangur þessara breytinga.


Framfylgd laganna er enda verulega flókin í framkvæmd og telur stjórn Heimdallar að tíma lögreglunnar og fjármunum skattgreiðenda sé betur eytt í önnur verkefni en að telja farþega í bílum og kanna aldur ökumanna.

Þessi lagabreytingin ber vott um gífurlegt virðingarleysi og forræðishyggju gagnvart ungu fólki. Það er mikið áhyggjuefni að núverandi ríkisstjórn finnst í lagi að takmarka með þessum hætti réttindi þeim yfirgnæfandi fjölda ungmenna sem ávallt fylgir lögum við akstur og gefa lögreglunni heimildir til að áreita það til að koma í veg fyrir háttsemi nokkurra svartra sauðra á meðal þeirra.

Einnig er í drögum frumvarpsins lagt til að bílprófsaldur verði hækkaður í 18 ár. Í rökstuðningi fyrir þessu er m.a. vísað til þess að einstaklingar verði lögráða við 18 ára aldur. Stjórn Heimdallar leggur til, verði þessi breyting samþykkt, að önnur réttindi fylgi þessu fordæmi og að áfengisaldurinn verði lækkaður niður í 18 ára sjálfræðisaldur.

 

22. júlí 2009Ályktanir

Heimdallur leggst gegn Icesave samkomulaginu

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, skorar á þingmenn allra flokka að synja staðfestingar frumvarpi Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins. Ljóst þykir að samningurinn er langt frá því sem þjóðin getur sætt sig við eða staðið undir og getur vart talist sanngjarn miðað við fram komnar upplýsingar.

Stjórn Heimdallar telur að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við loforð sitt um gegnsæi í endurreisnarstarfinu þar sem ekki liggja allar upplýsingar fyrir svo að unnt sé að meta þá stöðu sem nú er uppi. Ríkisstjórninni ber að upplýsa þjóðina um allt sem við kemur samkomulaginu. Það er ófært að stjórnvöld samþykki samninginn vegna hótana alþjóðastofnana eða annarra aðila eins og raunin er. Sé ríkisstjórnin að líta framhjá slíkum hótunum vegna fyrirhugaðrar inngöngu Íslands í Evrópusambandið fordæmir Heimdallur slíka hegðun.

Í kjölfar þess að Alþingi felli samninginn  skal þegar í stað skipa nýja samninganefnd sem hafi það hlutverk að ganga til samninga við Breta og Hollendinga og freista þess að ná fram viðunandi samningum. Líta skal til lagalegra réttinda Íslands samhliða þess að gætt er þess að standa við alþjóðlegar skuldbindingar.
Fáist ekki óumdeilt viðunandi niðurstaða fyrir Ísland með samningaleiðinni, sem báðir aðilar geta sætt sig við, sér stjórn Heimdallar engan kost færan annan en að aðilar sameinist um að leggja málið fyrir dómstóla.

Íslensk stjórnvöld skulu ávallt bera hag þegna sinna fyrst og fremst fyrir brjósti og gæta þess að annarleg sjónarmið séu ekki að baki þess að eins gríðarlegir hagsmunir eru settir undir eins og í Icesave samkomulaginu.

30. júní 2009 Ályktun Heimdallar um efnahagstillögur Sjálfstæðismanna
02. apríl 2009 Ályktun Heimdallar um stjórnarskrárbreytingar
03. febrúar 2009 Ályktun Heimdallar um nýja ríkisstjórn
27. nóvember 2008 Ályktun Heimdallar um ábyrgð og traust
22. október 2008 Ályktun Heimdallar um framboð til öryggisráðs SÞ
10. október 2008 Ályktun Heimdallar um efnahagsástandið
14. ágúst 2008 Ályktun um nýjan meirihluta í Reykjavík
27. júní 2008 Trúfélög fá heimild til að staðfesta samvist
14. apríl 2008 Ályktun um lækkun innflutningstolla
08. apríl 2008 Ályktun um aðgerðir atvinnubílstjóra
28. febrúar 2008 Heimdallur fagnar afmæli bjórsins 1. mars
22. febrúar 2008 Lækkun tekjuskatts á fyrirtæki fagnað
19. febrúar 2008 Íbúðarlánasjóður tímaskekkja
24. janúar 2008 Yfirlýsing afhent ungliðahreyfingum vinstrimanna
24. desember 2007 Jólakveðja
05. nóvember 2007 Fundur um fjárlögin 2008
05. nóvember 2007 Hugmyndum viðskiparáðherra í neytendamálum fagnað
23. október 2007 Hugmyndum um niðurlagningu kirkjumálaráðuneytis fagnað
08. október 2007 Fyrirhugaðri sölu Orkuveitunnar á REI fagnað
04. október 2007 Ályktun um málefni Orkuveitu Reykjavíkur