Kynslóð með kynslóð og stétt með stétt
Fyrir nokkrum árum hlustaði ég á viðtal við konu í útvarpinu, sem var að segja frá ráðstefnu sem var framundan, í lok viðtalsins sagði hún: “Það eru allir velkomnir, börn, unglingar, fullorðið fólk og aldraðir”! Mér var hugsað til þess hvort aldraðir væru ekki fullorðið fólk? Þetta hefur væntanlega verið ómeðvituð kynslóða aðgreining hjá konunni! Að skipta fólki í hópa – draga það í dilka- endurspeglast því miður í svo mörgu. Við sem komin eru af léttasta skeiði eigum erfitt með að skilja þetta viðhorf. Þriðja kynslóðin er ekki annars flokks hópur í þjóðfélaginu! Öldruðum hefur fjölgað mun meir en í öðrum aldurshópum. Nú er svo komið að rödd þeirra verður æ meira áberandi í samfélaginu. Þeir hafa tekið málin í sínar hendur, gera ráðstafanir til að tryggja afkomu sína á efri árum og búa í haginn þegar komið er að því sem kallað hefur verið þriðja aldursskeiðið. Þriðja kynslóðin hefur lifað tímana tvenna og á drjúgan reynslubanka til að miðla þeim yngri og reynsluminni ef því er að skipta!
Þess vegna vorum við í stjórn SES ekki sátt þegar í ljós kom að þeir sem voru 76 ára eða eldri voru útilokaðir í skoðanakönnunum, þegar leitað var viðhorfa til ýmissa þátta í þjóðmálum, svo sem stuðning við ríkisstjórnir og stjórnmálaflokka. Þar var úrtakið bundið við 18-75 ára! 76ára og eldri sem eru 7.55% af kosningabærum mönnum voru útilokaðir í skoðanakönnunum en svo sannarlega eftirsóttir í kosningum. Við gerðum athugasemd við þetta hjá Capacent Gallup og nú hefur það verið leiðrétt og efrimörk í skoðanakönnunum afnumin. Nú geta líka þeir sem eru 76 ára og eldri tekið þátt í slíkum könnunum ef svo ber undir. Það er ekki síður mark á þeim takandi, enda er eldra fólk oft staðfast í skoðunum t.d. á pólitískum vettvangi, heldur sig gjarnan við sinn “flokk” hvað sem á dynur!!
Höfum hugfast að stefna Sjálfstæðisflokksins byggir á sjónarmiðum mannúðar, frelsi einstaklingsins til orða og athafna, og um leið á góðu velferðarkerfi með hjálp til sjálfshjálpar þeim til handa sem þess þurfa, lýðræðislegum stjórnarháttum, virðingu fyrir umhverfinu og gæðum jarðar.
Stefna Sjálfstæðisflokksins hefur staðist tímans tönn með því að aðlagast þeim breytingum sem orðið hafa í þjóðlífinu á undanförunum áratugum og það verður verkefni landsfundarins nú að leggja fram markvissa stefnu í breyttu umhverfi á þessum erfiðu tímum sem nú blasa við heimilum og atvinnufyrirtækjum í landinu.
Stöndum saman sjálfstæðismenn ungir sem aldnir, fjarlægjum “girðingarnar” og hættum að draga fólk í dilka
Kynslóð með kynslóð og stétt með stétt!
- Salome Þorkelsdóttir
Eldri Frelsisleiðarar
22. janúar 2010 Áslaug María Friðriksdóttir svarar spurningum Heimdallar 22. janúar 2010 Hildur Sverrisdóttir og spurningarnar 22. janúar 2010 Kjartan Magnússon svarar spurningum 22. janúar 2010 Emil Örn Kristjánsson situr fyrir svörum 21. janúar 2010 Þorbjörg Helga og spurningar Heimdallar 21. janúar 2010 Elínbjörg Magnúsdóttir svarar spurningum Heimdallar 20. janúar 2010 Björn Gíslason svarar spurningum 05. október 2009 Framundan er barátta um hugsjónir 27. mars 2009 Allt er bannað sem er ekki sérstaklega leyft 23. febrúar 2009 Kynslóð með kynslóð og stétt með stéttAllar frelsisleiðarar
