Allt er bannað sem er ekki sérstaklega leyft
Valið stendur um það hvort hér verður vinstri stjórn ríkisvæðingar og forræðishyggju eða frjálslynd ríkisstjórn sem leysir úr læðingi krafta einstaklingsins svo okkur takist að vinna bug á þeim erfiðleikum sem við er að glíma. Fyrir ungt fólk stendur valið á milli þess hvort það vill fá að njóta hæfileika sinna eða setja allt sitt traust á ríkið og stjórnmálamennina. Fyrir millistéttina stendur valið á milli þess hvort hún telur rétt að ríkinu verði leyft að soga meira til sín í formi sérstaks
millitekjuskatts eða hvort sagt verður nei við aukinni skattheimtu. Fyrir þá sem eldri eru stendur valið milli þess hvort þeir sætta sig við sérstakan elliskatt í formi eignaskatts sem lagður verður á eða hvort stefna Sjálfstæðisflokksins fær áfram að ríkja um skattleysi eigna almennings.
Í komandi kosningum er því tekist á um grunngildi samfélagsins. Hvort einstaklingurinn fái að njóta hæfileika sinna eða hvort ríkisvaldið verði þanið út. Hvort skattheimtumaðurinn í líki Indriða Þorlákssonar fái að valsa um allt þjóðfélagið og skattleggja allt sem hreyfist. Við kjörborðið ráða kjósendur því hvort forsjárhyggja Steingríms J. Sigfússonar fær að festa hér rætur, þar sem lögmálið verður að allt sé bannað sem er ekki sérstaklega leyft. Varla er það sú framtíðarsýn sem ungt fólk hefur.
Í kjörklefanum gera kjósendur það upp við sig hvort þeir vilja setja allt sitt traust á ríkisvaldið undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur eða hvort þeir treysta sér og sínum betur. Sjálfstæðisflokkurinn treystir á fólkið í landinu en vantreystir ríkisvaldinu til verka sem það á ekki að vasast í. Vinstri menn vantreysta fólkinu í landinu en setja allt sitt traust á ríkisvaldið.
Valið er því skýrt í komandi kosningum. Við ungt fólk segi ég þetta: Treystið á ykkur sjálf, en gerið kröfu á stjórnmálamennina og ríkisvaldið að ykkur séuð sköpuð tækifæri til að njóta hæfileika ykkar í námi og starfi. Gerið skýra kröfu um að njóta frelsis til orðs og æðis án þess að Steingrímur J. og Jóhanna séu að anda ofan í hálsmálið á ykkur. Í kjörklefanum hafið þið tækifæri til að senda einföld skilaboð: Við viljum framtíð án hafta og ríkisvæðingar – framtíð án afskipta embættismanna og ofstjórnar vinstri manna – framtíð sem við eigum beinan þátt í að móta.
- Bjarni Benediktsson
Eldri Frelsisleiðarar
22. janúar 2010 Áslaug María Friðriksdóttir svarar spurningum Heimdallar 22. janúar 2010 Hildur Sverrisdóttir og spurningarnar 22. janúar 2010 Kjartan Magnússon svarar spurningum 22. janúar 2010 Emil Örn Kristjánsson situr fyrir svörum 21. janúar 2010 Þorbjörg Helga og spurningar Heimdallar 21. janúar 2010 Elínbjörg Magnúsdóttir svarar spurningum Heimdallar 20. janúar 2010 Björn Gíslason svarar spurningum 05. október 2009 Framundan er barátta um hugsjónir 27. mars 2009 Allt er bannað sem er ekki sérstaklega leyft 23. febrúar 2009 Kynslóð með kynslóð og stétt með stéttAllar frelsisleiðarar
