Björn Gíslason svarar spurningum
Það er mér bæði ljúft og skylt að svara þeim spurningum sem mest brenna á vörum félagsmanna í Heimdalli og sendar voru til mín vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Hver er stefna þín varðandi framtíðarskipulag Reykjavíkurborgar. Hvar séðu sóknarfæri í nýrri byggð og hvar sérðu hindranir?
Svar: Mín stefna er að haldið verði áfram uppbyggingu í Úlfarsfelli og það svæði klárað um leið og hagur þjóðarinnar batnar. Jafnframt verði hafist handa um deiliskipulag á Geldinganesi og íbúða- og atvinnubyggð með stækkun Örfiriseyjar að Akurey. Sett verði vinna í að fullklára þær hugmyndir sem borgarstjórn fékk í hendurnar þegar farið var út í samkeppni um hafnarsvæðið og Örfirsey.
Enn sem komið er tel ég ekki tímabært að fara út í frekari skipulagsvinnu varðandi íbúðabyggð í Vatnsmýrinni enda er töluvert í að flugvöllurinn fari ef hann þá fer.
Vilt þú lækka útsvar í Reykjavík? Ef já, þá hversu mkið á næsta kjörtímabili.
Svar: Miðað við ástandið í þjóðfélaginu í dag er erfitt að sjá að hægt verði að lækka útsvarið. Um leið og birtir og hjól atvinnulífsins fara að snúast er nauðsynlegt að lækka útsvarið sem í dag er 13,03% og er þó ekki fullnýtt.
Viltu lækka fasteignagjöld í Reykjavík? Ef já, þá hversu mikið á næsta kjörtímabili?
Svar: Fasteignagjöld saman standa af fasteignaskatti, lóðarleigu, holræsagjaldi, vatnsgjaldi og sorphirðugjaldi. Þann 24. janúar 2008 lækkaði Borgarstjórn Reykjavíkur hlutfall fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði úr 0,225% í 0,214% vegna ársins 2008. Borgarráð ákvað þan 3. desember 2009 að tekjumörk v/lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2010 myndu lækka
um 100% hjá einstaklingi með tekjur allt að kr. 2.460.000 (hjón 3.440.000),
um 80% hjá einstaklingi með tekjur á bilinu kr. 2.460.000 til kr. 2.830.000
(hjón á bilinu kr.3.840.000 til kr. 4.580.000)
um 50% hjá einstaklingi með tekjur á bilinu kr. 2.830.000 til kr. 3.290.000
(hjón á bilinu kr. 3.840.000 til kr. 4.580.000)
Því má ljóst vera að verulega hefur verið tekið tillit til þeirra sem hafa lágar tekjur. Framtíðin verður að skera úr um hvort þessi lækkun sé nægjanleg og mun ég beita mér fyrir því að þessir liðir verði teknir til skoðunnar á næstu árum m.t.t. ástandsins í þjóðfélaginu.
Telur þú að flugvöllurinn eigi að fara úr Vatnsmýrinni. Ef já, þá hvert?
Svar: Nei, ekki að svo komnu máli. Á meðan flugvöllurinn er í Vatnsmýrinni verður hann ætíð þrætuepli. Ef upp koma sterkari rök fyrir því að hann eigi að fara mun ég vega það og meta með hag borgarbúa í huga. Með þéttingu byggðar verður að huga að samgöngumálum. Engar töfralausnir eru á að bæta samgöngur á þessu svæði og þær sem hafa verið ræddar eru okkur ofviða fjárhagslega.
Vilt þú beita þér gegn samræmdum kjarasamningum kennar,a t.d. þannig að grunnskólar í Reykjavík fái heimild til að semja sjálfstætt við sína kennara?
Svar: Já, ég er meðfylgjandi því að hægt verði að umbuna kennurum sem skara fram úr. Þetta er þekkt erlendis og því ætti slíkt fyrirkomulag ekki að virka hér?
Hvað vilt þú gera til þess að Reykjavík verði eftirsóknarverð borg fyrir ungt fólk að búa og starfa í?
Svar: Með nægilegu lóðarframboði sbr. spurningu nr. 1 er ungu fólki auðveldað að búa í Reykjavík. Í tíð R-listans var skortur á lóðaframboði. Við það fór fasteignaverð upp. Það er ekki það sem við viljum og kemur sér illa fyrir þá sem eru að koma sér þaki yfir höfuð.
Í Reykjavík er öflugt menningarlíf og því vil ég við halda og bæta enn frekar. Nýlega tók Háskóli Reykjavíkur í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði á frábærum stað. Þar mun um 2000 nemendur stunda nám í framtíðinni.
Þá var fyrirhugð bygging listaháskóla en þau framtíðarplön hafa verið sett í bið.
Nauðsynlegt er að taka þar upp þráðinn þegar um hægist.
Tjarnarbíó hefur verið í endurbyggingu frá grunni og mun skapast þar glæsileg aðstaða fyrir leikhópa og einnig kvikmyndaklúbba. Fyrirhugað er að taka húsnæðið í notkun í mars n.k.
Íþrótta- og æskulýðsstarf er í miklum blóma. Reist hafa verið vegleg íþróttamannvirki og fjárhagsgrundvöllur íþrótta- og æskulýðsfélaga hefur verið styrktur m.a. með auknum fjárstuðningi til lækkunar þátttökugjalda grunnskólanema í íþróttastarfi. Ég mun beita mér fyrir því að áfram verði haldið á þeirri braut eftir því sem efni og aðstæður leyfa.
Að lokum er rétt að benda á að leikskólar eru mjög góðir í Reykjavík, leikskólagjöld með þeim lægstu m.v. önnur sveitarfélög og veittur er 100% systkinaafsláttur.
Með flokkskveðju,
Björn Gíslason slökkviliðsmaður og varaborgarfulltrúi.
Eldri Frelsisleiðarar
22. janúar 2010 Áslaug María Friðriksdóttir svarar spurningum Heimdallar 22. janúar 2010 Hildur Sverrisdóttir og spurningarnar 22. janúar 2010 Kjartan Magnússon svarar spurningum 22. janúar 2010 Emil Örn Kristjánsson situr fyrir svörum 21. janúar 2010 Þorbjörg Helga og spurningar Heimdallar 21. janúar 2010 Elínbjörg Magnúsdóttir svarar spurningum Heimdallar 20. janúar 2010 Björn Gíslason svarar spurningum 05. október 2009 Framundan er barátta um hugsjónir 27. mars 2009 Allt er bannað sem er ekki sérstaklega leyft 23. febrúar 2009 Kynslóð með kynslóð og stétt með stéttAllar frelsisleiðarar
