Elínbjörg Magnúsdóttir svarar spurningum Heimdallar
Hver er stefna þín varðandi framtíðarskipulag Reykjavíkurborgar. Hvar séðu sóknarfæri í nýrri byggð og hvar sérðu hindranir?
Aðalskipulag Reykjavíkur er nú í vinnslu að ég best veit. Þar er allt undir, íbúðabyggð, atvinnusvæði, opin almenningssvæði, samgöngur og svo framvegis. Borgarbúar fá að koma að þeirri vinnslu svo ég held að best sé að sjá hver niðurstaðan verður. Þar verða sóknarfærin og hindranirnar krufnar til mergjar.
Vilt þú lækka útsvar í Reykjavík? Ef já, þá hversu mkið á næsta kjörtímabili.
Já ég vildi svo gjarnan lækka álögur á borgarbúa. Ég á þó ekki von á að það sé raunhæfur möguleiki í nánustu framtíð. kannski í lok kjörtímabils ef okkur gengur vel að ná okkur uppúr núverandi aðstæðum.
Viltu lækka fasteignagjöld í Reykjavík? Ef já, þá hversu mikið á næsta kjörtímabili?
5% lækkun fasteignaskatts sem átti að vera komin til framkvæmda var frestað vegna kreppunnar. þær tölur eru til um leið og færi gefst og fjáhagur borgarinnar leyfir.
Telur þú að flugvöllurinn eigi að fara úr Vatnsmýrinni. Ef já, þá hvert?
Nei, flugvöllurinn á ekki að fara úr borginni. Eini möguleikinn sem ég gæti sætt mig við er að hann færi á Bessastaðanesið á Álftanesi. Minni á vinnslu aðalskipulags, nýting Vatnsmýrarinnar er þar undir eins og annað borgarland.
Vilt þú beita þér gegn samræmdum kjarasamningum kennar,a t.d. þannig að grunnskólar í Reykjavík fái heimild til að semja sjálfstætt við sína kennara?
Ég hef í mörg ár, sennilega á undan flestum öðrum, talað fyrir því að obinberu félögin verði lögð niður og obinberir starfsmenn gangi í þau almennu fagfélög sem við á( vildi hafa það sem hluta af þjóðarsáttinni 1991). Það eru til stéttar/fagfélög fyrir alla starfsmenn ríkis og bæjar. Það eiga ekki að vera sérsamningar og sérréttindi fyrir obinbera starfsmenn. Hvort það eigi að taka kennara sérstaklega fyrir veit ég ekki, en myndi ekki skorast undan ef sú stefna yrði ofan á.
Fyrir unga fólkið þurfa að vera fjölbreyttir atvinnumöguleikar, þar sem menntun og hæfni hvers og eins fær að njóta sín. Hafa góða leik- og grunnskóla, þar sem íþrótta- og tómstundaiðkun barnanna er samþætt skólastarfinu og dregur úr svo kölluðu "skutli". Ef tilraunin með frístundastrætó gengur vel verður það vonandi til frambúðar, í fleiri hverfum, sem er mikið öryggi og hagræði fyrir foreldra. Endurnýja þarf tæki og laga lóðir á mörgum leiksvæðum. Bæta opin útivistarsvæði og göngu/hjólastíga. Auka forvarnastarf í skólum og styrkja þá aðila sem vinna að slíkum málum. Öflugt menningalíf er líka eftirsóknarvert. Ég er sjálfsagt að gleyma einhverju en vil þó lokum segja þetta. Reykjavík þarf að vera eftirsóknarverð fyrir alla aldurshópa. Ég er amma og vil að barnabörnin mín búi í samfélagi sem allar núlifandi kynslóðir lifa saman í sátt og samlyndi, því við á mismunandi aldri bætum hvert annað upp.
Bestu kveðjur.
Elínbjörg Magnúsdóttir
Eldri Frelsisleiðarar
22. janúar 2010 Áslaug María Friðriksdóttir svarar spurningum Heimdallar 22. janúar 2010 Hildur Sverrisdóttir og spurningarnar 22. janúar 2010 Kjartan Magnússon svarar spurningum 22. janúar 2010 Emil Örn Kristjánsson situr fyrir svörum 21. janúar 2010 Þorbjörg Helga og spurningar Heimdallar 21. janúar 2010 Elínbjörg Magnúsdóttir svarar spurningum Heimdallar 20. janúar 2010 Björn Gíslason svarar spurningum 05. október 2009 Framundan er barátta um hugsjónir 27. mars 2009 Allt er bannað sem er ekki sérstaklega leyft 23. febrúar 2009 Kynslóð með kynslóð og stétt með stéttAllar frelsisleiðarar
