hotspot
21. janúar 2010 | 16:17:52Frelsisleiðarinn

Þorbjörg Helga og spurningar Heimdallar

Smellið að á meira til að lesa viðtalið.

Hver er stefna þín varðandi framtíðarskipulag Reykjavíkurborgar. Hvar séðu sóknarfæri í nýrri byggð  og hvar sérðu hindranir?

Í grófum dráttum er stefna mín að þétta skipulag borgarinnar með það að markmiði að gæða borginna lífi, gera hana grænni og stytta samgönguleiðir borgarbúa.  Hindranir vegna skipulags felast líklega að mestu í veðrinu sem hefur áhrif á val fólks á samgöngumáta.  Vissulega er líka hindrun á næstkomandi árum þar sem uppbygging liggur lágt eða alveg niðri.

Vilt þú lækka útsvar í Reykjavík? Ef já,  þá hversu mkið á næsta kjörtímabili.

Já, ég vil stefna að lækkun útsvars í Reykjavík.  Ég tel að á næsta kjörtímabili verði erfitt að búa til svigrúm til þess og markmið mitt er í þessum efnahagsþrengingum að leita allra leiða við tekjurýrnun annara en að hækka útsvar.  Íbúar borgarinnar mega alls ekki við því þegar hagvöxtur er lítill sem enginn, kaupmáttarrýrnun talsverð og tekjur lægri að útsvar hækki.


Viltu lækka fasteignagjöld í Reykjavík? Ef já, þá hversu mikið á næsta kjörtímabili?

Já, ég vil stefna að því að lækka fasteignagjöld í Reykjavík.  Upphæð lækkunar verður að meta eftir að áhrif lækkunar fasteignaverðs eftir efnahagshrunsins hafa komið að fullu fram svo hægt sé að meta áhrif á borgarsjóð.


Telur þú að flugvöllurinn eigi að  fara úr Vatnsmýrinni. Ef já,  þá hvert?

Ég tel að flugvallarsvæðið sé tilvalið uppbyggingarsvæði fyrir Reykjavík til lengri tíma þar sem það þéttir byggð verulega með tilheyrandi kostum fyrir umhverfið. Það kallar hins vegar á umfangsmiklar endurbætur á gatnakerfinu í miðborginni til þess að taka við aukinni umferð sem mundi fylgja þéttri byggð í Vatnsmýrinni.

Raunsætt mat mitt er þó að efnahagsumhverfi okkar Íslendinga  hafi breytt aðstæðum gríðarlega og að flugvöllurinn verði í Vatnsmýrinni til næstu ára og jafnvel tugi ára.  Því er mikilvægt að Reykvíkingar nýti þá kosti sem fyrir eru til hagsbóta fyrir jafnt borgarbúa sem alla þá sem nýta sér samgöngukerfið við flugvöllinn. Í þessu ljósi er nauðsynlegt um sinn að  sameinast um að byggja samgöngumiðstöð. Með henni verði bætt nauðsynleg flugvallarþjónusta og þannig auðveldað aðgengi að samgöngukerfinu fyrir ferðamenn og landsmenn sem nýta völlinn þar til aðstæður breytast og raunhæft verður að gera áætlun um breytingar á landnotkun í Vatnsmýrinni.  Þangað til er auðvelt að halda áfram uppbyggingu á þeim svæðum sem losna þegar hætt verður að nýta  NA-SV brautina eins og gert er ráð fyrir.  Jafnframt verður að huga að hagsmunum borgarbúa með því að draga sem mest úr þeirri flugvallaþjónustu sem getur verið annarsstaðar og dregið þannig úr  mengun og hávaða og öðru því óhagræði sem skapast fyrir íbúabyggð sem næst er flugvellinum án þess að raska hinni mikilvægu þjónustu við innanlandsflugið.  Komi að því að brjóta þarf land í Vatnsmýri í þágu höfuðborgarinnar og flugþjónustan flutt annað verður ekki undan því vikist að tryggja samgönguæðarnar til og frá miðju borgarinnar að flugvellinum sem ætlað verður að þjóna innanlandsfluginu svo fórnarkostnaður við flutning verði sem minnstur.


Vilt þú beita þér gegn samræmdum kjarasamningum kennar,a t.d. þannig að grunnskólar í Reykjavík fái heimild til að semja sjálfstætt við sína kennara?

Ég er mikill talsmaður þess að losa um kjarasamninga kennara til að hægt sé að hvetja kennara til framfara í störfum sínum.  Margar leiðir eru til, til dæmis framgangskerfi eða hvatakerfi.  Ýmsar hugmyndir samræmast því að vera í samræmdum kjarasamningum og ég held að það sé vænlegra til árangurs að vinna áfram að slíku til að byrja með.  Nú þegar er bókun 5 tilraun til slíks og þarf að nýta mun betur til að láta reyna á sérsamninga sveitarfélags við kennara og skóla.

Hvað vilt þú gera til þess að Reykjavík verði eftirsóknaverð borg fyrir ungt fólk að búa og starfa í?


Ég held að borgir séu eftirsóknarverðar ef þær bjóða upp á þjónustu fyrir alla íbúa og að ungt fólk líti til þess þegar það velur sér búsetu.  Það er því mikilvægast að borgin sé metnaðarfull í þjónustu fyrir allan aldur og alla hópa.  Almennt held ég að mikilvægt sé fyrir ungt fólk að það sé líf í miðborginni, að boðið sé upp á metnaðarfullar skólastofnanir innnan borgarmarkana og að ólíkar tegundir íbúða séu í boði.  Þetta þrennt finnst mér mikilvægt að stuðla að og verja.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Deila á Facebook Deila á Digg Deila á Myspace

Eldri Frelsisleiðarar

22. janúar 2010 Áslaug María Friðriksdóttir svarar spurningum Heimdallar  
22. janúar 2010 Hildur Sverrisdóttir og spurningarnar  
22. janúar 2010 Kjartan Magnússon svarar spurningum  
22. janúar 2010 Emil Örn Kristjánsson situr fyrir svörum  
21. janúar 2010 Þorbjörg Helga og spurningar Heimdallar  
21. janúar 2010 Elínbjörg Magnúsdóttir svarar spurningum Heimdallar  
20. janúar 2010 Björn Gíslason svarar spurningum  
05. október 2009 Framundan er barátta um hugsjónir  
27. mars 2009 Allt er bannað sem er ekki sérstaklega leyft  
23. febrúar 2009 Kynslóð með kynslóð og stétt með stétt  

Allar frelsisleiðarar