hotspot
22. janúar 2010 | 12:35:40Frelsisleiðarinn

Kjartan Magnússon svarar spurningum

Smellið á meira!

Hver er stefna þín varðandi framtíðarskipulag Reykjavíkurborgar. Hvar sérðu sóknarfæri í nýrri byggð  og hvar sérðu hindranir?

Tryggjum val um ólíka búsetukosti. Við framtíðarskipulag borgarinnar á að hafa í huga að fólk hefur ólíkar óskir um skipulag og búsetuform. Því er æskilegt að fólk hafi val um ólíkar lausnir og svo heppilega vill til að Reykjavíkurborg hefur ýmsa möguleika að þessu leyti. Æskilegt er að áfram verði unnið að þéttingu byggðar og framboð tryggt af íbúðum miðsvæðis í borginni. Á sama tíma haldið áfram sölu lóða í nýjum hverfum fyrir þá sem það vilja. Aðalatriðið er að fólk hafi val.

Mikilvægt er að bæta umferðarskipulag borgarinnar. Skoða þarf betri dreifingu skóla og vinnustaða til að draga úr umferðarþunga. Verði nýr framhaldsskóli byggður, er æskilegt að hann verði í austurhluta borgarinnar, t.d. í Árbæjarhverfi. Verði um frekari uppbyggingu háskólastarfsemi að ræða, er æskilegt að hún verði í austurhluta borgarinnar, t.d. í tengslum við Nýsköpunarmiðstöð og rannsóknastofnanir atvinnulífsins að Keldnaholti.

Vilt þú lækka útvar í Reykjavík? Ef já,  þá hversu mikið á næsta kjörtímabili.

Ég hef ætíð verið harður andstæðingur þess að útsvarið verði hækkað og því er ég að sjálfsögðu stuðningsmaður þess að það verði lækkað. Við eigum að lækka útsvarið um leið og skilyrði til þess skapast, þ.e. þegar tekjur borgarinnar fara hækkandi á ný.

Vilt þú lækka fasteignagjöld í  Reykjavík? Ef já, þá hversu mikið  á næsta kjörtímabili?

Já. Fasteignaskattar voru lækkaðir um 10% árið 2007 en áformum um frekari lækkun var frestað  haustið 2008 vegna efnahagserfiðleikanna. Ólíklegt er að  hægt verði að ráðast í slíka lækkun á meðan fasteignaverð (og þar með tekjur borgarinnar af skattinum) lækkar eins hratt og útlit er fyrir. Þegar lækkunin er komin fram, er hægt að meta hvort efni séu til skattalækkunar og hve mikil hún getur orðið.

Telur þú að flugvöllurinn eigi að  fara úr Vatnsmýrinni. Ef já,  þá hvert?

Samkomulag er um að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni til 2024 og borgin á að sjálfsögðu að standa við hann. Borgarfultrúar Sjálfstæðisflokksins hafa verið reiðubúnir til að ræða hugsanlegan flutning vallarins ef jafngott eða betra vallarstæði fyndist á höfuðborgarsvæðinu. Sá staður hefur ekki fundist auk þess sem fjárhagslegar forsendur fyrir slíkum flutningi eru nú orðnar hæpnar. Því er einsýnt að hann verði áfram í Vatnsmýri. Ýmsir möguleikar eru hins vegar fyrir hendi til frekari þéttingar byggðar í kringum flugvöllinn og þá á að sjálfsögðu að skoða en gæta vel að umferðarskipulagi.

Vilt þú beita þér gegn samræmdum kjarasamningum kennara, t.d. þannig að grunnskólar í  Reykjavík fái heimild til að semja sjálfstætt við sína kennara?

Allar rannsóknir sýna okkur að til að ná sem bestum árangri í skólastarfi þá þurfum við hæfa og duglega kennara.  Við þurfum því að umbuna kennurum fyrir vel unnin störf.  Kannanir í Reykjavík hafa sýnt okkur að þegar við foreldrar erum ánægð með starf og samskipti við umsjónakennara barnanna okkar þá yfirfærist sú ánægja á skólastarfið sjálft og við metum skólann okkar góðan.

Brýnt er að auka sveigjanleika í skólastarfi og ákjósanleg leið til þess er sú  að draga úr þeirri miðstýringu, sem óneitanlega felst í samræmdum kjarasamningum kennara. Núverandi kjarasamningur er að mínu mati óþarflega flókinn og stýrir um of vinnutíma kennara.  Í skólunum eru margvísleg verkefni sem þarf að vinna og enginn er betur fallinn til að skipuleggja starfið en skólastjórinn í samráði við starfsfólkið. Ég tel að kjarasamningar kennara eigi að vera sem líkastir samningum á almennum vinnumarkaði. Í tveimur skólum í Reykjavík hefur verið tekið upp vinnufyrirkomulag sem er líkt því sem gerist á almennum vinnumarkaði í stað hins samræmda kjarasamnings. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel að mínu mati og vil ég gjarnan sjá það tekið upp í fleiri skólum, t.d. í nýjum skóla, sem opnaður verður í Úlfarsárdal haustið 2010.

Til að efla enn frekar árangur og vellíðan barnanna okkar í grunnskólum verður að  vinna markvisst í anda árangursstjórnunar líkt og bestu fyrirtæki og stofnanir gera.  Setja verður fram metnaðarfull markmið, skilgreina þau atriði sem þarf til að árangur verði sem bestur, meta árangur kerfisbundið og vinna umbætur á forsendum mats.  Grunnskólar í Reykjavík eru margir hverjir að  innleiða vinnubrögð sem styðja við þessa hugmyndafræði.  Launakerfið verður að vera í samræmi við hvernig unnið er í skólunum og því kallar sveigjanlegt og markmiðsbundið skólastarf á sveigjanlegt og árangurstengt launakerfi.

Hvað  vilt þú gera til þess að Reykjavík verði eftirsóknaverð  borg fyrir ungt fólk að búa og starfa í?

Ég vil að borgin búi íbúum sínum sem best skilyrði til þess að þeir geti leitað hamingjunnar á eigin forsendum. Til þess þarf gott umhverfi fyrir einstaklinga og fjölskyldur, öflugt atvinnulíf, gott menntakerfi, skilvirkt samgöngukerfi, rík tækifæri til heilsueflingar og dægradvalar, velferðarkerfi og síðast en ekki síst góð íbúðarhverfi. Ýmislegt af þessu er í góðu horfi en margt þarf engu síður að bæta, t.d. með  því að fjölga valkostum. Ungt fólk vill eiga sem fjölbreytilegast val um námsleiðir, atvinnu, húsnæði, samgöngukosti, íþróttir, útivist, menningu og þannig má áfram telja. Hlutverk stjórnmálamanna er m.a. að tryggja að slíkir valkostir séu fyrir hendi, ekki síst með þátttöku hins frjálsa framtaks.

Deila á Facebook Deila á Digg Deila á Myspace

Eldri Frelsisleiðarar

22. janúar 2010 Áslaug María Friðriksdóttir svarar spurningum Heimdallar  
22. janúar 2010 Hildur Sverrisdóttir og spurningarnar  
22. janúar 2010 Kjartan Magnússon svarar spurningum  
22. janúar 2010 Emil Örn Kristjánsson situr fyrir svörum  
21. janúar 2010 Þorbjörg Helga og spurningar Heimdallar  
21. janúar 2010 Elínbjörg Magnúsdóttir svarar spurningum Heimdallar  
20. janúar 2010 Björn Gíslason svarar spurningum  
05. október 2009 Framundan er barátta um hugsjónir  
27. mars 2009 Allt er bannað sem er ekki sérstaklega leyft  
23. febrúar 2009 Kynslóð með kynslóð og stétt með stétt  

Allar frelsisleiðarar