hotspot
22. janúar 2010 | 12:36:37Frelsisleiðarinn

Hildur Sverrisdóttir og spurningarnar

Smellið á meira til þess að lesa viðtalið!

Hver er stefna þín varðandi framtíðarskipulag Reykjavíkurborgar. Hvar sérðu sóknarfæri í nýrri byggð og hvar sérðu hindranir?

Borgaryfirvöld, í samvinnu við íbúana, þurfa stöðugt að vera móta og þróa stefnu og útfæra hugmyndir um framtíðarskipulag borgarinnar. Erfið er sú þraut að ráða í hvað framtíðin ber í skauti sér. Engu að síður verðum við stöðugt að vera byggja besta mögulegan grunn fyrir komandi kynslóðir. Það verður að vanda til þess verks. Reykjavík hefur fjölmarga og skemmtilega kosti til að þróast og eflast enn frekar. Hlutverk borgaryfirvalda er að tryggja borgurunum lýðræðislegan vettvang til að koma að ákvörðunartöku um skipulag til framtíðar og vinna úr þeim hugmyndum og niðurstöðum á ábyrgan hátt.

Ég sé fyrir mér að borgaryfirvalda bíði það verkefni að útfæra og móta tillögur um hvar nýjir Reykjavíkar eigi að búa og hvernig þeir eigi að ferðast um borgina á sem hagkvæmastan hátt. Borgaryfirvöldum ber einnig að sjá til þess að ytra umhverfi atvinnurekstrar og nýsköpunar sé hagkvæmt og feli í sér tækifæri til að auka lífsgæði allra borgarbúa.

Hvað varðar sóknarfæri í nýrri byggð þá tel ég mikilvægt að ljúka við þau hverfi sem þegar hafa verið skipulögð á höfuðborgarsvæðinu. Það getur verið hagur allra að meira samráð sé haft við nágrannasveitarfélögin þó slíkt samráð megi ekki hindra heilbrigða samkeppni á milli sveitarfélaga. Við eigum að halda áfram að þétta byggð eins og hægt er og má þá meðal annars líta til Vatnsmýrarinnar og Örfiseyjar í því samhengi. Hindranirnar á veginum eru fyrst og fremst efnahagslegar. Ef okkur tekst ekki að ná skjótt efnahagslegum bata og auka hér aftur lífskjör er hætt við því að lítið verði um framþróun byggðar á næstu árum.  

Vilt þú lækka útvar í Reykjavík? Ef já, þá hversu mikið á næsta kjörtímabili.

Já, það á alltaf að vera ófrávíkjanleg stefna Sjálfstæðisflokksins að lækka skatta. Lækkun skatta er hagkvæmt og skynsamlegt úrræði sem spronar gegn samdrætti í samfélaginu. Skattalækkanir örva hagkerfið og veita einstaklingum réttmætan ráðstöfunarrétt yfir endurgjaldi vinnu sinnar. Reykjavík á ávallt að stefna að því að útsvar sé eins lágt og mögulegt er.

Verkefni Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn síðan haustið 2008 hefur verið að hagræða og forgangsraða í rekstri borgarinnar svo ekki kæmi til hækkunar á útsvari vegna minnkandi tekna í kjölfar efnahagsástandsins. Á næstu misserum verður áfram nauðsynlegt að gæta aðhalds í rekstri borgarinnar. Þegar réttir úr kútnum á ný á það að vera eitt af okkar fyrstu verkum að leyfa borgarbúum að njóta þess með lækkun skatta. Vegna ástandsins í íslensku efnahagslífi er erfitt að nefna nákvæmar tölur í þessu sambandi en varlega áætlað tel ég forsendur til þess að útsvarið lækki um 0,06% á næstu 4 árum, í 12,97%.

Vilt þú lækka fasteignagjöld í Reykjavík? Ef já, þá hversu mikið á næsta kjörtímabili?

Já. Í fyrsta lagi tel ég rétt að forsendur fasteignamatsins verði endurskoðaðar. Hluti fasteignagjalda byggir á fasteignamati sem hefur hækkað gríðarlega á undanförnum árum. Nú þegar fasteignaverð fer lækkandi er sanngjarnt að fasteignamatið sé lækkað til samræmis við það sem fyrst. Í öðru lagi tel ég æskilegt að afnema hluta fasteignagjalda í skrefum. Í því sambandi lít ég fyrst til holræsagjaldsins sem ég tel að eigi að lækka til að byrja með um helming en það kemur bæði fyrirtækjum og einstaklingum til góða. Eins myndi ég vilja sjá fasteignagjöld af atvinnuhúsnæði lækka í 1,15% af fasteignamati.

Telur þú að flugvöllurinn eigi að fara úr Vatnsmýrinni. Ef já, þá hvert?

Já, þó það gerist ekki í nánustu framtíð. Í Vatnsmýrinni felst einstakt tækifæri til að gera borgina okkar enn fallegri og öflugri. Ég tel hins vegar að flugvöllurinn verði ekki færður nema fyrir liggi skýr valkostur sem ógni ekki flugöryggi eða hagsmunum landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins.

Vilt þú beita þér gegn samræmdum kjarasamningum kennara, t.d. þannig að grunnskólar í Reykjavík fái heimild til að semja sjálfstætt við sína kennara?


Ég mun ekki beita mér gegn því ef að kennarar kjósa sjálfir að ganga sameiginlega til kjarasamninga né ef þeir kjósa að semja ekki sameiginlega. Sama gildir um sveitarfélögin, hvort sem þau ákveða að hafa samráð sín á milli um hvernig þau semja eða vilji að gera það sitt í hvoru lagi. Ég mun hvorki beita mér fyrir því að þau þurfi að semja saman né að þau verði semja sitt í hvoru lagi.

Hvað vilt þú gera til þess að Reykjavík verði eftirsóknaverð borg fyrir ungt fólk að búa og starfa í?

Reykjavík er borg unga fólksins. Hér er fjölbreytt háskólastarfsemi, magnað lista- og menningarlíf og góð þjónusta fyrir barnafólk með öflugum skólum og leikskólum. Samgöngur þurfa að vera góðar og skipulagsmál þannig að boðið sé upp á fjölbreytta valkosti til búsetu. Reykjavík þarf að hlúa að atvinnustarfsemi í borginni svo fyrirtækin nái að blómstra til að ungt fólk hafi úr fjölbreyttum störfum að velja í samræmi við menntun sína og áhuga. Ég veit að nái Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta í borginni mun ungt fólk una sér vel í Reykjavík.

Hildur

Deila á Facebook Deila á Digg Deila á Myspace

Eldri Frelsisleiðarar

22. janúar 2010 Áslaug María Friðriksdóttir svarar spurningum Heimdallar  
22. janúar 2010 Hildur Sverrisdóttir og spurningarnar  
22. janúar 2010 Kjartan Magnússon svarar spurningum  
22. janúar 2010 Emil Örn Kristjánsson situr fyrir svörum  
21. janúar 2010 Þorbjörg Helga og spurningar Heimdallar  
21. janúar 2010 Elínbjörg Magnúsdóttir svarar spurningum Heimdallar  
20. janúar 2010 Björn Gíslason svarar spurningum  
05. október 2009 Framundan er barátta um hugsjónir  
27. mars 2009 Allt er bannað sem er ekki sérstaklega leyft  
23. febrúar 2009 Kynslóð með kynslóð og stétt með stétt  

Allar frelsisleiðarar