hotspot
22. janúar 2010 | 12:36:49Frelsisleiðarinn

Áslaug María Friðriksdóttir svarar spurningum Heimdallar

Smellið á meira til þess að lesa viðtalið!

Hver er stefna þín varðandi framtíðarskipulag Reykjavíkurborgar. Hvar sérðu sóknarfæri í nýrri byggð og hvar sérðu hindranir?
Horfa þarf til þess að íbúar hafi kost á að búa nær vinnustaðnum. Styttri vegalengdir milli heimilis og vinnustaðar gefa svigrúm til jafnari umferðar og um leið fjölbreyttari ferðamáta.  Þétting byggðar er mikilvægur þáttur í umhverfisvænni og mannvænni borg. Borgina er hægt að þétta án þess að bæta við miklu byggingarlandi og án þess að ganga á græn svæði. Sóknarfærin eru að þétta í byggðum hverfum og bjóða upp á fjölbreytta íbúðamöguleika fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Hindranir uppbyggingar eru auðvitað takmarkað fé til framkvæmda og mikið framboð húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu öllu.

Vilt þú lækka útvar í Reykjavík? Ef já, þá hversu mikið á næsta kjörtímabili.
Helsta verkefni borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins verður að hækka ekki útsvar, mér finnst ólíklegt að við náum að lækka útsvarið.

Vilt þú lækka fasteignagjöld í Reykjavík? Ef já, þá hversu mikið á næsta kjörtímabili?
Fasteignagjöld voru lækkuð á kjörtímabilinu, ég get ekki séð að færi verði á næsta ári eða árum að lækka fasteignagjöld.

Telur þú að flugvöllurinn eigi að fara úr Vatnsmýrinni. Ef já, þá hvert?

Flugvöllurinn er ekki á leið úr Vatnsmýrinni á næsta kjörtímabili, hvorki liggur fyrir ákjósanleg staðsetning og eftirspurn eftir lóðum til bygginga hefur snarminnkað.
Lykilatriði er að ákvarðanir um flugvöllinn verði unnar í sátt bæði við íbúa borgarinnar og landsmenn alla.

Vilt þú beita þér gegn samræmdum kjarasamningum kennara, t.d. þannig að grunnskólar í Reykjavík fái heimild til að semja sjálfstætt við sína kennara?

Já, tel það mikilvæga forsendu fyrir nýsköpun í skólastarfi og sveigjanlegri framtíðarlausnum.

Hvað vilt þú gera til þess að Reykjavík verði eftirsóknaverð borg fyrir ungt fólk að búa og starfa í?

Ungt fólk vill lifandi mannlíf og skapandi umhverfi. Reykjavík á að vera grasrótarborg þar sem menningarlífið kraumar.
Ungt fólk lítur að sjálfsögðu líka til námsframboðs, húsnæðismála, dagvistunarúrræða fyrir börnin og framboðs starfa eins og aðrir íbúar og því mikilvægt er að borgarstjórn haldi vel á spöðunum svo þróun verði í rétta átt.
Til að gera þetta má nota ýmsar aðferðir, s.s. hugmyndasamkeppnir, samstarfssamninga, stuðning við grasrótarstarf og útboð/útvistun verkefna. Annað er hluti af stærra mengi og meginreglan til að gera þetta vel er að skilja hvað ungt fólk fæst við dags daglega og hvernig koma má til móts við það. Til að ná árangri þarf að virkja ungt fólk til að taka virkan þátt í borgarmálunum og umræðum um hvernig breyta má umhverfinu til hins betra.


Áslaug Friðriksdóttir | Varaborgarfulltrúi og formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur

Deila á Facebook Deila á Digg Deila á Myspace

Eldri Frelsisleiðarar

22. janúar 2010 Áslaug María Friðriksdóttir svarar spurningum Heimdallar  
22. janúar 2010 Hildur Sverrisdóttir og spurningarnar  
22. janúar 2010 Kjartan Magnússon svarar spurningum  
22. janúar 2010 Emil Örn Kristjánsson situr fyrir svörum  
21. janúar 2010 Þorbjörg Helga og spurningar Heimdallar  
21. janúar 2010 Elínbjörg Magnúsdóttir svarar spurningum Heimdallar  
20. janúar 2010 Björn Gíslason svarar spurningum  
05. október 2009 Framundan er barátta um hugsjónir  
27. mars 2009 Allt er bannað sem er ekki sérstaklega leyft  
23. febrúar 2009 Kynslóð með kynslóð og stétt með stétt  

Allar frelsisleiðarar