hotspot
03. febrúar 2010 | 22:53:34Pistill

Reykjavík unga fólksins

Ungt fólk verður að sækja fram í kosningum til borgarstjórnar í vor með sínar áherslur og sín stefnumál. Þótt stjórnmál séu í grunninn barátta ólíkra hugmynda og skoðana eru þau líka barátta milli kynslóða. Í þeirri baráttu verður ungt fólk að stíga fram af krafti og nýta þann samtakamátt sem þessi stóri hópur býr yfir.

Á laugardaginn mun Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, standa fyrir opnu húsi í Valhöll þar sem farið verður í hópavinnu varðandi áherslur ungs fólks fyrir komandi kosningar undir yfirskriftinni Reykjavík unga fólksins. Viðburðurinn hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 15:30. Meðal þeirra málaflokka sem verða teknir til skoð eru mennta- og fjölskyldumál, skipulags-, samgöngu- og umhverfismál, fjármál borgarinnar og hagsmunir ungs fólks í dag.

Þórey Vilhjálmsdóttir, kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun í byrjun halda stutt erindi um þá baráttu sem framundan er.

Við hvetjum allt áhugasamt ungt fólk til að koma og taka þátt í skemmtilegri vinnu.