hotspot
28. febrúar 2010 | 23:24:47Fréttir

Til hamingju með daginn - tímabært að huga að næstu skrefum

Um leið og Heimdallur óskar landsmönnum til hamingju með 21 árs afmæli bjórsins á Íslandi og býður til afmælisfagnaðar á Ölstofunni mánudagskvöldið 1. mars kl. 21.00 þá hvetur hann þingmenn til þess að stíga næsta skref í umbótum á regluverki áfengismála hér á landi og heimila sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum. Ennfremur þarf að gera breytingar á fyrirkomulagi skattlagningar áfengis sem er afar íþyngjandi hér á landi.

Í dag er 21 ár liðið frá því að sala bjórs var leyfð hér á landi. Mikil átök voru um málið á sínum tíma og ýmis stór orð voru látin falla um afleiðingar þess að samþykkja breytingu á þingi á sínum tíma. Eftir á að hyggja er þó illmögulegt að ímynda sér að síðustu tvo áratugina hefði bjór verið ólögleg vara hér á landi.

Eðlilegt er að huga að frekari breytingum á umgjörð áfengismála hér á landi. Enn er ríkið með einokunarverslun á öllu áfengi hér á landi. Gera þarf breytingar þar að lútandi og skynsamlegt væri að fyrsta skrefið í þeim efnum yrði að heimila sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum enda standa engin rök til þess að undanskilja þessa vöru frá öllum öðrum. Ekki þykir tiltökumál þótt öll matvara, sælgæti, gosdrykkir og tóbak séu seld í
matvöruverslunum en ríkið krefst þess að fólk geri sér svo sérferð í einokunarverslanir sínar í kjölfarið.

Ennfremur þarf að endurhugsa skattlagningu á áfengi enda má segja að áfengi hér á landi sé fjórskattlagt.

Í fyrsta lagi þarf framleiðandi að standa skil á áfengisgjöldum sem eru stighækkandi eftir því sem áfengisinnihald vöru hækkar.  Eru þau greidd eftir afgreiðslu frá framleiðanda til ÁTVR. ( til ábendingar þá hafa þau verið hækkuð þrívegis síðustu 12 mánuði)

Í öðru lagi þá borgar framleiðandi einnig virðisaukaskatt af þeirri afgreiðslu sem er ekki bara lagt ofan á innkaupsverð vörunnar heldur einnig ofan á áfengisgjöldin.  Því er verið að skattleggja skatttekjur.

Í þriðja lagi þá gerist það að þegar vara er komin inn fyrir dyr ÁTVR þá bætist þar álagning þeirra sem 18%.

Í fjórða lagi þegar viðskiptavinur ÁTVR kaupir vöruna í þeirra verslunum bætist þar á virðisaukaskattur á ný.

Allar þessar breytingar væru skref í átt að bættri áfengismenningu hér á landi. Sú nálgun ríkisins að skattleggja og einoka hefur litlu skilað fyrir utan að taka verslun frá venjulegum matvöruverslunum. Tímabært er að gera breytingar á þessu