hotspot
13. júlí 2010 | 17:26:13Fréttir

Evrópuþingmaðurinn Daniel Hannan á fundi Heimdallar

Daniel Hannan, þingmaður Breta á Evrópuþinginu, verður með erindi á hádegisfundi Heimdallar föstudaginn 16. júlí nk. í Antares-salnum í Háskólanum í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 12.15 og stendur til kl. 13.00. Allir eru velkomnir og hvattir til að mæta.

Hannan, sem er í breska Íhaldsflokknum og þingmaður fyrir Suðaustur-England á Evrópuþinginu, hefur vakið mikla athygli fyrir gagnrýni sína á Evrópusambandið, frammistöðu ríkisstjórnar Gordons Brown og málefni Tíbet svo dæmi séu tekin. Þá hefur látið stöðu Íslands sig varða, þar á meðal Icesave-deiluna. Hann mun á fundinum m.a. ræða málefni Evrópusambandsins, stöðu Íslands í samningaviðræðum við sambandið og hvernig hugsanlegur aðildarsamningur muni líta út.

Nánari upplýsingar um Hannan má finna hér og auk þess má sjá ýmsar ræður og ræðubrot á Youtube.

Um Hannan:
http://en.wikipedia.org/wiki/Daniel_Hannan

Ræður og ræðubrot:
http://www.youtube.com/watch?v=94lW6Y4tBXs

Blogg Hannans:
http://blogs.telegraph.co.uk/news/author/danielhannan/