hotspot
29. júlí 2010 | 22:16:09Fréttir

Ályktun um Magma-málið: Ríkisstjórnin stöðvar viðskipti til að halda friðinn

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur samþykkt ályktun um tilraunir ríkisstjórnarinnar til að koma í veg fyrir kaup Magma á hlut í HS Orku. Í ályktuninni er bent á að kaupin séu í samræmi við lög og reglur og að tilgangur ríkisstjórnarinnar virðist helst vera sá að halda ríkisstjórnarsamstarfinu saman. Sjónarmið um að það skipti máli hvort móðurfélagið sé frá Kanada eða aðildarríki Evrópusambandsins eru ómálefnaleg, enda engin rök að gera upp á milli fjárfesta eftir þjóðerni.

Ályktunin í heild sinni er svohljóðandi:

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkisstjórn gangandi. Til þess eins að halda friðinn á stjórnarheimilinu hefur ríkisstjórnin tekið upp þá yfirlýstu stefnu að bregða með öllum tiltækum leiðum fæti fyrir lögmæt kaup Magma á eignarhluta í HS Orku. Kaupin eru í samræmi við lög sem hafa að markmiði að skilja á milli eignarhalds á auðlindum annars vegar og dreifingu hins vegar. Skattgreiðendur á Reykjanesi eru betur settir að þurfa ekki að taka áhættuna af rekstri orkufyrirtækisins enda er árangur stjórnmálamanna í rekstri orkufyrirtækja langt frá því að vera glæsilegur. Þá má minna á að sterkir íslenskir fjárfestar fengust ekki til þess að kaupa hlutinn, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir stjórnvalda til þess að koma málinu í þann farveg.

Kaup hins erlenda félags á hlut í HS Orku er erlend fjárfesting sem er mikilvæg fyrir íslensku þjóðina um þessar mundir. Velta má fyrir sér hvað hafi orðið um hinar þungu áhyggjur af ímynd Íslands og möguleikum á erlendri fjárfestingu sem stjórnarliðar báru fyrir sig til að réttlæta samþykkt ríkisábyrgðar fyrir hinum vonda Icesave-samning sem fjármálaráðherra staðfesti í fyrra. Icesave-málið er óleyst en ríkisstjórnin hefur tekið að sér á eigin spýtur að bola erlendum fjárfestum úr landi.

Sjónarmið um að þjóðerni kaupandans skipti máli eru ekki málefnaleg. Spyrja má hvort ríkisstjórn sem kennir sig við norræna velferð treysti ekki félagi skráðu í Svíþjóð? Treystir ríkisstjórnin sem hefur tekið stefnu á Evrópusambandið ekki reglum Evrópuréttarins um heimilisfesti félaga og fyrirtækja? Væri málið í reynd eitthvað öðruvísi ef móðurfélagið væri frá aðildarríki Evrópusambandsins heldur en Kanada?

Heimdallur hvetur ríkisstjórnina til þess að halda betur á þessu máli og láta af tilraunum sínum til að gera út af við eðlileg viðskipti um eignarhlut í þessu fyrirtæki.