hotspot
27. maí 2010 | 00:04:10Pistill

Djókið í borgarstjórn

„Þetta getur nú ekki orðið meira djók en síðustu fjögur árin í borgarstjórn!“ – er algengt viðkvæði þessa dagana af hálfu kjósenda til flokkanna. Og vissulega var margt furðulegt á boðstólum í borgarstjórn á því kjörtímabili sem er nú að líða. Mestu skiptir þó að eftir að núverandi forysta tók við hefur tekist að halda rekstri borgarinnar réttu megin við núllið án þess að hækka skatta eða fara út í mikla þjónustuskerðingu. Það eru hinar leiðinlegu en mikilvægu staðreyndir málsins.

Víst var margt furðulegt á síðasta kjörtímabili. Um nokkura mánaða skeið 2007 og 2008 var Ríkisútvarpið með daglega beina útsendingu frá Ráðhúsinu. Borgarfulltrúar á leið inn og út úr byggingunni og alls konar samsæriskenningar á lofti um hver yrði næsti borgarstjóri og hver væri að mynda meirihluta með hverjum. Það var grátið á fundum, farið fram á heilbrigðisvottorð og öskrað á pöllum, svo eitthvað sé nefnt.

Á þessu varð þó snögg breyting eftir ágúst 2008 þegar fjórði meirihlutinn var myndaður og Hanna Birna Kristjánsdóttir varð borgarstjóri. Í sjálfu sér var hin nýja forysta ekki að framkvæma nein töfrabrögð eða snilld heldur náðu þau einfaldlega tökum á stöðunni. Það tók smá tíma en það tókst og nokkur atriði skiptu meira máli en önnur, samstarf við minnihlutann á mörgum sviðum í stað stöðugra deilna og skýr sýn á það sem skipti máli – að koma borginni í gegnum þá efnahagserfiðleika sem voru að ganga í garð á þeim tíma án þess að missa tök á rekstrinum, skerða þjónustu verulega eða hækka skatta.

Þessi meginmarkmið hafa haldið. Á miklum erfiðleikatímum tókst að skila borgarsjóði réttu megin við núllið, eins og tilkynnt var á dögunum. Þetta hefur tekist án þess að hækka útsvar eða fara út í stórfelldan niðurskurð í þjónustu borgarinnar og gefur góða von um að borgin komist í gegnum kreppuna án þess að þurfa að seilast djúpt í vasa skattgreiðenda í borginni. Það er mikilvægt, enda hefur fólk ekki úr miklu aukreitis að moða þessa dagana.

Þetta er auðvitað hin raunverulega stóra frétt síðasta kjörtímabils í borginni. Vandræðalegir blaðamannafundir og stöðug meirihlutaskipti eru hins vegar miklu fréttnæmari og fá því meiri athygli. Og auðvitað verða menn að læra af því sem gerðist á síðasta kjörtímabili. Það breytir þvi þó ekki að um þessar mundir er rekstur og stjórnun borgarinnar á réttu róli.

Ég held að það gæti verið skemmtilegt að fá nýtt og ferskt blóð inn í borgarstjórn eins og allt stefnir í að gerist með því að Besti flokkurinn fái nokkra borgarfulltrúa kjörna. En sá hópur mun ekki ná utan um það verkefni að reka borgina og tækla öll þessi daglegu smáatriði sem upp kunna að koma.

Staðreyndin er nefnilega sú að hversu skemmtilegt og auðvelt sem starf borgarfulltrúans kann að hljóma þá er töluverð vinna að hitta reglulega fulltrúa íþróttafélaga, hagsmunasamtaka, verktaka, húsafriðunarsinna, íbúasamtaka,  fyrirtækja, leikskóla og grunnskóla og alla þá runu af borgarbúum sem á hverjum degi og í hverri viku koma með kröfur sínar og óskir inn á borð borgarstjórnar. Úr þessu verður að reyna að leysa þannig að þeir sem bera upp erindið fái einhver svör en að sama skapi án þess að sjóðir borgarbúa tæmist á nokkrum vikum því flest erindin fela í sér beiðni um einhvers konar útgjöld og aðstoð.

Núverandi borgarfulltrúar í Reykjavík eru örugglega ekki fullkomnir eða óskeikulir þegar kemur að því að vinna úr málum fólks frekar en stjórnmálamenn annars staðar í heiminum. En munurinn er kannski sá að þeir eru að minnsta kosti að bjóða sig fram til þess að sinna þessum verkefnum. Það er grínframboð hins vegar tæplega að gera. Þótt tilhugsunin um að viðtöl við Jón Gnarr vegna leyfisveitinga sé náttúrulega óborganlega fyndin þá er spurningin hvort það eigi ekki frekar heima í Fóstbræðrum eða Næturvaktinni heldur en í borgarstjórn.

Þetta kemur allt saman í ljós. Ef borgarbúar velja í meirihluta framboð sem er í grunninn að gera grín að kosningum þá verður það að teljast hin lýðræðislega niðurstaða og felur í sér mikil skilaboð og högg til hinna rótgrónu flokka. En það gæti líka falið í sér ákveðið högg fyrir kjósendur inn í kjörtímabilið, sem stendur yfir til ársins 2014, hvað sem á dynur í borgarstjórn á næstu árum.

- Árni Helgason