hotspot
24. júní 2010 | 11:12:05Fréttir

Ályktun Heimdallar: Fyrirtæki axli ábyrgð á mistökum við samningagerð


Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hvetur stjórnvöld til þess að sitja á sér með afskipti af svokölluðum myntkörfulánum og samningum þess efnis í kjölfar dóms Hæstaréttar. Samningarnir eru áfram í gildi þó eitt ákvæði þeirra hafi verið metið ólögmætt.

Í samningum felst alltaf ákveðin áhætta og í þessu tilfelli verða fyrirtækin að axla ábyrgðina á því að verðtrygging lánanna var ólögmæt, rétt eins og fyrirtækin sjálf fóru fram á að skuldarar virtu samningana og tækju á sig hallann af gengisþróuninni fram að því að dómar Hæstaréttar féllu.

Íhlutun stjórnvalda í samningana með lagasetningu eða öðrum leiðum væri auk þess enn eitt dæmið þar sem hið opinbera kæmi fyrirtækjum til bjargar í kjölfar mistaka sem gerð eru. Brýnt er að hafa í huga að fyrirtækin starfa á eigin ábyrgð en ekki stjórnvalda eða skattgreiðenda.