Gildi Heimdallar
Í lögum félagsins kemur fram að Heimdallur skuli berjast fyrir þjóðlegri og víðsýnni framfarastefnu í þjóðmálum með hagsmuni allra stétta fyrir augum.
Heimdallur trúir því að íslenskt samfélag eigi að vera samfélag tækifæra; þar sem allir einstaklingar hafa mikil og jöfn tækifæri til að mennta sig, skapa verðmæti úr hæfileikum sínum, ná langt á eigin verðleikum og leita hamingjunnar á sínum forsendum. Í samfélagi tækifæranna eiga jafnframt allir sem misstíga sig, lenda í veikindum, slysum eða atvinnuleysi að geta treyst því að öryggisnet samfélagsins grípi þá svo þeir fái annað tækifæri í hamingjuleitinni.
Slíkt samfélag fær aðeins blómstrað ef einstaklingar þess eru frjálsir og ríkisvaldið miðar fyrst og síðast að því að standa vörð um frelsi þeirra og réttindi, og tryggja þau tækifæri sem að ofan eru nefnd. Það er af því að hver einstaklingur er best til þess fallinn að taka sjálfur ákvarðanir sem varða eigin hamingju og leysa úr eigin vandamálum.
Það á ekki að vera, og má aldrei verða hlutverk stjórnmálamanna að hugsa fyrir fólkið í landinu. Þeirra hlutverk á að einskorðast við að greiða götu einstaklingsins og gæta þess að vera ekki sköpunarkrafti og frumkvæði almennings fjötur um fót.
Þannig, og aðeins þannig, sköpum við samfélag tækifæra á Íslandi.
