Um Heimdall
Um Heimdall
Heimdallur er félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Tæplega 7.000 einstaklingar á aldrinum 15 til 35 ára eru félagar í Heimdalli og taka margir virkan þátt í starfi félagsins og Sjálfstæðisflokksins. Félagið var stofnað 16. febrúar árið 1927 og var þá fyrsta stjórnmálafélag ungs fólks á Íslandi. Árið 1930 var Samband ungra sjálfstæðismanna stofnað fyrir atbeina Heimdallar, stærsta aðildarfélags sambandsins.
Markmið Heimdallar er að berjast fyrir þjóðlegri og víðsýnni framfarastefnu í þjóðmálum með hagsmuni allra stétta og öfluga sameiningu þjóðarinnar fyrir augum. Heimdallur styður Sjálfstæðisflokkinn að málum og fylgir sjálfstæðisstefnunni, sem setur traust sitt á sérhvern einstakling og frelsi hans í þeirri vissu, að fái frumkvæði hans, framkvæmdaþróttur og kapp notið sín, miði skjótast áfram. Mestu máli skiptir að ríkisvaldinu sé beitt af hófsemd og þá þannig að það verndi rétt manna, myndi eðlilegar leikreglur um framferði þeirra og tryggi frelsi þeirra og öryggi svo þeir geti leitað lífshamingjunnar á eigin forsendum.
Tólf manna stjórn að formanni meðtöldum stýrir daglegu starfi félagsins og er hún kjörin á árlegum aðalfundi. Annars staðar á síðunni getur að líta upplýsingar um stjórnarmenn Heimdallar á núverandi starfsári.
Vefur Heimdallar - frelsi.is - er vettvangur félagsmanna til að koma skoðunum sínum á framfæri. Skoðanir greinarhöfunda endurspegla ekki endilega skoðanir stjórnar Heimdallar. Á vefnum getur einnig að líta upplýsingar um það sem er á döfinni í starfi félagsins hverju sinni.
Núverandi ritstjóri vefsins er Katrín Thorsteinsson.
Hægt er að hafa samband við ritstjórn með því að senda tölvupóst á netfangið heimdallur@xd.is.
