Lög Heimdallar
Lög HEIMDALLAR, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík
I. Kafli.Nafn og tilgangur.
1. gr.
Félagið heitir HEIMDALLUR og er félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, lögheimili þess er í Reykjavík.
Markmið félagsins er að berjast fyrir þjóðlegri og víðsýnni framfarastefnu í þjóðmálum með hagsmuni allra stétta og öfluga sameiningu þjóðarinnar fyrir augum.
Markmiði þessu hyggst félagið ná með því að fylgja eindregið Sjálfstæðisflokknum að málum, styðja hann við kosningar og vinna að hugsjónum hans.
Meðlimir.
4. gr.
Reykvíkingar á aldrinum 15-35 ára, sem ekki eru félagar í öðrum stjórnmálaflokkum en Sjálfstæðisflokknum, geta sótt um aðild að félaginu.
Nú vilja félagsmenn í félagi ungra sjálfstæðismanna stofna deild innan Heimdallar. Þá skulu þeir senda umsókn til stjórnar Heimdallar um aðild að honum. Inntökubeiðni skulu fylgja lög, félagatal og hverjir skipa stjórn hlutaðeigandi deildar.
Hver sá sem ekki starfar í deild, getur gengið í félagið. Skal hann senda skriflega umsókn til stjórnar félagsins og sker hún um hvort umsóknin skuli tekin til greina.
Við úrskurð um aðild deildar eða einstaklinga þarf samþykki 8 stjórnarmanna.
Stjórn félagsins getur vikið úr félaginu hverri þeirri deild eða einstaklingi sem að hennar áliti brýtur lög félagsins eða vinnur gegn stefnu þess. Til þess þarf 8 atkvæði. Áfrýja má slíkri ákvörðun stjórnarinnar til fulltrúaráðs félagsins.
Stjórn félagsins og starfsemi.
7. gr.
Málefni félagsins annast stjórn félagsins, fulltrúaráð og almennir fundir og nefndir sem þessir aðilar kjósa sér til aðstoðar.
Í stjórn félagsins sitja 12 menn að formanni meðtöldum. Formaður skal kosinn sérstaklega. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Framboð til stjórnar og formanns skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund. Stjórn félagsins skal auglýsa um leið og aðalfundur er auglýstur í fyrsta skipti, sbr. 13. gr. hvar og hvenær framboðum skal skilað. Ef ekki er sjálfkjörið skal kosning vera skrifleg. Stjórnin skiptir með sér verkum. Nú gengur stjórnarmaður úr stjórninni og skal þá nýr kosinn í hans stað á almennum félagsfundi sem halda skal innan tveggja vikna frá því stjórnarmaðurinn hætti. Fundurinn skal auglýstur opinberlega með viku fyrirvara. Framboðum skal skilað á fundinum. Nú gengur formaður úr stjórninni og skal þá ný formannskosning fara fram með sama hætti að öðru leyti en því að framboðum skal skilað til stjórnar félagsins með tveggja sólarhringa fyrirvara. Í fundarboði skal getið hvar og hvenær framboðum skal skilað. Fulltrúar deilda innan félagsins eiga seturétt á stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt. Á aðalfundi skal kjósa 2 endurskoðendur og einn til vara. Tillagna um endurskoðendur leitar fundarstjóri á aðalfundi.
Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Formaður boðar til þeirra og stýrir þeim nema annað sé ákveðið. Stjórnarfundi skal að jafnaði boða með tveggja sólarhringa fyrirvara. Stjórnarfundur er löglegur er meirihluti stjórnarmanna situr fund. Óski fjórðungur stjórnar eftir stjórnarfundi ber að halda hann innan viku frá því formanni berst slík ósk skriflega.
Innan félagsins skal starfa fulltrúaráð. Stjórn félagsins og allir þeir fyrrverandi formenn Heimdallar sem enn eru í félaginu skulu vera sjálfkjörnir í ráðið. Stjórn félagsins skal skipa a.m.k. 78 félagsmenn í fulltrúaráðið. Við val á mönnum í fulltrúaráðið skal miða við störf þeirra innan félagsins. Formaður Heimdallar er formaður fulltrúaráðsins.
Fulltrúaráðinu er ætlað að vera tengiliður milli stjórnar og félagsdeilda og einstakra félagsmanna. Stjórn félagsins má leita til fulltrúa, ef hún þarf að láta vinna einhver aðkallandi störf í þágu félagsins og hugsjóna þess. Skal stjórnin hafa samráð við fulltrúaráðið varðandi þau mál sem telja verður, að skipti miklu fyrir félagið og stefnu þess.
Fundi heldur stjórnin með fulltrúaráðinu eins oft og þurfa þykir. Óski þriðjungur fulltrúaráðsins eftir fundi og sendi um það skriflega ósk til stjórnar félagsins, er henni skylt að taka það til greina.
Aðalfund félagsins skal halda árlega og ekki síðar en 1. október og skal boða til hans með minnst viku fyrirvara. Allar kosningar á aðalfundi skulu vera bundnar og skriflegar sé þess sérstaklega óskað. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála og kjöri á aðalfundinum, sb. þó 17. gr. Verði atkvæði jöfn, ræður hlutkesti. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
3. Umræður um skýrslu og reikninga.
4. Lagabreytingar.
5. Umræður og afgreiðsla stjórnmálaályktunar.
6. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda og eins til vara.
7. Önnur mál.
Samþykki aðalfundar þarf til við breytingu á röðun dagskrár.
Stjórn félagsins skal kappkosta að rækja hvers konar starfsemi sem líkleg er til að efla félagið og styrkja málstað þess. Fund skal halda ef minnst 50 félagsmenn krefjast þess í bréfi til stjórnarinnar. Fundi félagsins skal boða eins vel og kostur er á.
Með góðum fyrirvara fyrir alþingis- og sveitastjórnarkosningar skal stjórn félagsins skipa nefnd 3-5 manna sem skipuleggi og stjórni öllu kosningastarfi félagsins í umboði stjórnar og í samvinnu við hana.
Tekjur.
15. gr.
Árgjald félagsmanna er frjálst.
Reikningstímabil félagsins er tíminn milli aðalfunda.
Lagabreytingar o.fl.
17. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 aðkvæða allra fundarmanna til að breytingin nái fram að ganga.
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
